Kristrún um gjaldtöku: 'Við lifum í breyttum heimi'

Kristrún um gjaldtöku: 'Við lifum í breyttum heimi'
View on original source
Category: Politics
Share
Archive
Like
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir tækniframfarir gera stjórnvöldum auðveldara að útfæra gjaldtöku á ferðamannastöðum en þegar hugmyndin um náttúrupassa var til umræðu fyrir rúmlega áratug. Gjaldtakan geti jafnframt nýst til að dreifa ferðamönnum betur um landið. Hún var spurð út í málið á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum í morgun, þar sem áherslur þingmálaskrár komandi vetrar voru kynntar. Spurningunni var beint að Kristrúnu í ljósi þess að hugmynd um svonefndan náttúrupassa var til umræðu á árunum 2014 og 2015 en þótti þá erfið í framkvæmd og var hætt við hana og í staðinn tekið upp gistináttagjald. Kristrún sagði tæknilega útfærslu hafa reynst erfiða á sínum tíma en að margt hefði breyst síðan. Snjallsímar væru nú útbreiddir og hægt væri að nýta tölvutækni, myndbands- og upptökutækni auk skynjara. 'Við lifum í breyttum heimi þegar kemur að svona hlutum. Við eigum að nýta okkur það.' Eins og mbl.is greindi frá í gær er gert ráð fyrir að ný gjaldtaka í ferðaþjónustu skili ríkissjóði fimm milljörðum króna á næsta ári. Horft er til þess að innheimta gjald af ferðamönnum við náttúruperlur í eigu ríkisins, en ekki er gert ráð fyrir að Íslendingar greiði fyrir aðgang. Fyrirhuguð gjaldtaka hefur sætt gagnrýni frá ferðaþjónustunni. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði í samtali við mbl.is að boðaðar skattahækkanir á greinina væru 'gríðarleg vonbrigði' og varaði við áhrifum þeirra á samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar. Kristrún sagði að byrjað yrði á ferðamannastöðum í eigu ríkisins og að ríkið hlyti að geta sett ákveðna stefnu um gjaldtöku á eigin svæðum. Hún sagði fyrirkomulagið einnig geta nýst til að stýra dreifingu ferðamanna. Mikill fjöldi ferðamanna sæki Suður- og Suðvesturland heim og stjórnvöld vilji gjarnan að fleiri ferðist víðar um landið. Þá sagði hún að tæknilausnin sem byggð yrði upp gæti síðar skapað einkaaðilum tækifæri til að taka þátt í fyrirkomulaginu. 'Ég vona að fólk horfi með opnum og jákvæðum augum á þetta,' sagði Kristrún að lokum.

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.