Hræðileg byrjun Tottenham

Hræðileg byrjun Tottenham
View on original source
Category: Sports
Share
Archive
Like
Tottenham hefur farið afar illa af stað í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta og er liðið enn án marks eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Tottenham gerði markalaust jafntefli við Nottingham Forest á laugardaginn, en þar á undan hafði liðið tapað 2:0 fyrir Newcastle United og 3:0 fyrir Brentford. Félagið eyddi 334 milljónum punda í nýja leikmenn í sumar en þeir hafa enn sem komið er ekki náð að sýna sínar bestu hliðar. Tottenham hefur ekki skorað í þremur leikjum í röð í fyrsta sinn síðan í nóvember 2021. Enn verra er að liðið átti ekki eitt einasta skot á mark gegn Nottingham Forest. Það er í fyrsta sinn síðan í apríl 2022 sem Tottenham tekst ekki að eiga skot á mark í leik. Tottenham er í 18. sæti deildarinnar, fallsæti, en liðið rétt svo slapp frá falli á síðasta tímabili.

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.