Þórunn: Mál að linni

Þórunn: Mál að linni
View on original source
Category: Politics
Share
Archive
Like
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, segir að almenn pólitísk umræða hér á landi beri með sér ákveðin hættumerki. 'Svo virðist, því miður, sem ofstopi og hótanir í garð forystufólks í stjórnmálum séu að verða daglegt brauð. Það vekur eftirtekt að þeir stjórnmálamenn sem helst fá að kenna á slíku framferði eru konur. Mál er að linni.' Þetta sagði Þórunn þegar hún ávarpaði þingmenn við setningu Alþingis í dag. Hún hóf ræðu sína á því að benda á að sumarið hefði verið tíðindasamt í pólitísku tilliti hér á landi og vísaði til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. 'Kjósendur sýndu málefninu áhuga og kjörsókn var mjög góð. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni fékkst afgerandi niðurstaða um afstöðu meiri hluta kjósenda, niðurstaða sem Alþingi ber að virða,' sagði hún. Þórunn sagði enn fremur að umræður hefðu orðið miklar og oftast góðar og upplýsandi þótt einnig bæri því miður á rangfærslum. 'En hin almenna umræða bar einnig ákveðin hættumerki sem vert er að staldra við. Svo virðist, því miður, sem ofstopi og hótanir í garð forystufólks í stjórnmálum séu að verða daglegt brauð. Það vekur eftirtekt að þeir stjórnmálamenn sem helst fá að kenna á slíku framferði eru konur. Mál er að linni,' sagði Þórunn. Hún benti á að ef lýðræðissamfélagið ætti að standa undir nafni yrðu þátttakendur í opinberri umræðu, sem meðal annars færi fram í athugasemdakerfunum á vefnum, að ráða við verkefnið. 'Það er undir hverju og einu okkar komið að leggja til málanna á þessum vettvangi þannig að gagn sé að en ekki skaði,' sagði forseti Alþingis enn fremur. Ávarp forseta Alþingis

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.