Guðrún Hafsteins fínleg í pilsadragt

Guðrún Hafsteins fínleg í pilsadragt
View on original source
Category: Entertainment
Share
Archive
Like
Guðrún Hafsteinsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins valdi satíndragt fyrir setningu Alþingis enda með eindæmum hátíðlegt tilefni. Dragtin er frá merkinu Marc Cain og er í ljósgrábláum lit. Jakkinn er bundinn um mittið og gefur kvenlegt yfirbragð. Pilsið er með beinu sniði og klauf á hliðinni. Guðrún hefur á síðustu mánuðum sótt mikið í satínið sem klæðir hana vel. Þá hefur hún verið lítið í mynstruðum fötum og helst valið sér einlitar satínflíkur í vínrauðum, dökkbláum, kremuðum, bleikum og ljósbláum litatónum. Fötin hennar Guðrúnar eru úr 82% asetati og 18% pólýester. Asetat er trefjaefni framleitt úr viðarkvoðu eða bómull sem er síðan unnin. Það telst því oft sem hálfgerviefni þar sem hráefnið kemur úr náttúrunni en fer í gegnum talsverða vinnslu áður en það verður að textíltrefjum. Þessi efnablanda gerir efnið silkimjúkt og slétt og getur minnt á silki. Það hentar vel á góðum haust- eða vordögum þar sem efnið er ekki sérstaklega sterkt þegar það er blautt og getur verið viðkvæmt fyrir miklum hita. Pólýester eykur þó við styrk og endingu efnisins. Jakkinn kostar 83.980 krónur og pilsið 36.980 krónur. Dragtin fæst hér á landi í versluninni Hjá Hrafnhildi.

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.