Allt að 100 þúsund eignir rangt verðmetnar

Allt að 100 þúsund eignir rangt verðmetnar
View on original source
Category: Financial
Share
Archive
Like
Eigendur allt að 100 þúsund íbúða í Danmörku hafa greitt ranga fasteignaskatta frá árinu 2024 þar sem mistök í fasteignamati urðu til þess að eignirnar voru rangt metnar árið 2022. Skattamálaráðherra Danmerkur segir að greiðendurnir verði að geta leitað leiða til að fá úr sínum málum skorið. Skattayfirvöld upplýstu um þetta eftir að danska ríkisútvarpið, DR, hafði ítrekað reynt að fá svör við því hvernig vegna lokaúttekt á sumum íbúðum var verulega frábrugðin fyrri úttekt. Mistökin uppgötvuðust í vor en ekki var upplýst um það fyrr en DR fór að spyrja spurninga. Mistökin urðu þegar gerð var lokaúttekt á um 300 þúsund íbúðum sem áttu að borga fasteignaskatt á þessu ári miðað við mat ársins 2022. Í mörgum tilvikum var það mat nokkuð frábrugðið bráðabirgðamati sem var sent út árið 2023. Tilkynningar um fasteignamat sem byggði á úttektunum voru sendar út smátt og smátt frá síðustu áramótum en þegar búið var að senda út 100 þúsund úttektir uppgötvuðust mistökin sem lágu í líkaninu sem var notað við útreikning matsins. Við það voru fasteignamatstilkynningar stöðvaðar. Villan sneri að því hvernig verðlagsþróun var bætt við álagninguna. Fasteignamatið segir vandann ekki stóran Anne-Sofie Jensen yfirmaður Fasteignamats Danmerkur segir við DR að í um 20 þúsund íbúðum sé skekkjan meiri en 20%. Í hinum 80 þúsund tilvikunum sé skekkjan innan marka. Mistökin séu pirrandi en skapi ekki stórt vandamál. Fasteignamatið telur að 20% skekkja sé innan marka og hefur það verið gagnrýnt mjög af hagfræðingum. Með því sé verið að slá ryki í augu fólks. Fasteignamatið segir að unnið sé að lausn en ekki liggur ennþá fyrir hvernig þeir sem hafa borgað ranga skatta verða á endanum skattlagðir. Jakob Engel-Schmidt skattamálaráðherra Danmerkur sagði í dag að hann vildi að greiðendur þessara röngu skatta gætu fengið þriðja aðila til að úrskurða um hver skattheimta þeirra eigi að vera.

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.