Kílómetragjaldið

Kílómetragjaldið
View on original source
Category: Financial
Share
Archive
Like
Nú ætla ég bara að tala út frá sérhagsmunum mínum eins og flestir gera. Mér er alveg sama þó að kílómetragjaldið hækki um 16%. Ég á bíl sem ég keyri lítið en ég vil að vegirnir sem ég keyri og ekki síður vegirnir sem ég hjóla og geng séu holulausir. Ef kílómetragjaldið fer í að lappa upp á vegakerfið mætti það hækka um 25% mín vegna. En ég er loksins búin að átta mig á því að það fólk sem endist í pólitík hefur það sérstaka áhugamál og þá sérstöku hæfileika að svara ekki spurningum. Ég hélt að stundum slægi bara út í fyrir fólki sem myndi ekki spurningarnar og svaraði þess vegna með einhverri gefinni möntru. En í guðs bænum hlustið á viðtalið á Bylgjunni seinni partinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins finnur fjárlagafrumvarpinu allt til foráttu - bæði hún og þáttastjórnendur kölluðu það í sífellu lög en það er frumvarp þangað til búið er að samþykkja það og það breytist alltaf í meðförum þingsins - en þegar hún var spurð: Hvaða lausnir sérð þú? Hvað væri hægt að gera til að bæta stöðuna án þess að hækka skatta og þjónustugjöld og fá hallalaus fjárlög? talaði hún ótrufluð um allt sem henni fannst að ríkisstjórninni. Þetta er landlægur andskoti. Og þótt viðmælandinn hafi staðið sig illa fer lastið á stjórnendurna sem voru algjörlega getulausir þegar kom að því að fylgja spurningunni eftir. Hlustið líka á síðasta viðmælandann í símatímanum beint á eftir. Svo ég loki hringnum ætla ég að segja að ég hef ekki hugmynd um hvað kílómetragjaldið mun hækka hjá mér við þessa breytingu en einhver viðmælandi í símatímanum var búinn að reikna út að hækkunin væri hjá meðalnotandanum 1.400 kr. á mánuði. Ef við viljum a) hallalaus fjárlög (sem spara okkur ómældar upphæðir í vaxtagjöldum), b) þjónustu sem hæfir velferðarríki, c) uppbyggingu - nú, er þá ekki lausnin að hækka fjármagnstekjuskatt og veiðigjöld? Hvar eru matarholurnar? Ég spyr þau sem vilja ekki lausnirnar em boðið er upp á. Og auðvitað er við hæfi að minna á þrástagið í ágúst: Við getum þetta sjálf! Við höfum alltaf gert þetta sjálf. Ég er kannski að gera Ólafi Adolfssyni grikk með því að nefna hann öðru sinni en mikið væri ég til í að heyra hvaða lausnir hann sér á þessari ráðgátu. Hann er lyfsali sem hefur verið í samkeppnisrekstri í grútmáttlausu kerfi en nú þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Að lokum spyr ég af hverju verðtrygging launa var afnumin á sínum tíma en ekki verðtrygging lána.

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.