Nokkur þúsund manns á öllum aldri komu saman á hátíðinni Heimar og himingeimar sem haldin var á Bókasafni Hafnarfjarðar í Firðinum um liðna helgi.
Unnur Helga Möller, viðburðastjóri Bókasafns Hafnarfjarðar, segir þetta þriðja skiptið sem hátíðin er haldin. Þar komi saman fólk sem hefur áhuga á búningum og búningagerð.
'Það er alveg frá brynjugerð og sögulegum klæðnaði yfir í endurgerð af búningum úr kvikmyndum og búninga úr japönskum teiknimyndum. Í rauninni hvað sem er, bara svo framarlega sem það er búningur,' segir Unnur við Morgunblaðið og bætir við að orðið búningur geti að vissu leyti verið dálítið flókið. 'Búningur er í rauninni hvert það samansafn af fötum sem myndar samstæða heild sem táknar eitthvað eða stendur fyrir eitthvað.'
Sem fyrr segir var hátíðin haldin á Bókasafni Hafnarfjarðar en um 50 manns komu að undirbúningnum og segir Unnur að bókasafninu hafi verið lokað að hluta seinnipart miðvikudags sökum þess. 'Það er unnið fram á nótt og pantaðar pítsur, þannig að það er unnið hörðum höndum venjulega frá fjögur á miðvikudegi og eiginlega til korter í opnun á föstudegi.'
Bókasafninu var breytt í fimm ólíka ævintýraheima þar sem var meðal annars að finna fantasíuheim, sögulegan heim, smiðjurými og Stjörnuspillinn, eða geimskip 501. herdeildarinnar, sem vakti mikla athygli á seinustu hátíð. Var geimskipið reist á nýjum stað og breyttist í heila bækistöð í nýju húsnæði Bókasafns Hafnarfjarðar. Eins og allt á hátíðinni var skipið smíðað af sjálfboðaliðum og vakti slíka athygli á hátíðinni í fyrra að hópnum barst boð um að fara með það á erlenda hátíð.
Aðgangur á hátíðina er ókeypis og bendir Unnur á að hún sé algjörlega rekin af sjálfboðaliðum og styrkjum.
'Það skiptir okkur miklu máli að allir hafi þann möguleika að koma og hitta okkur algjörlega óháð sinni ekónómísku stöðu. Þess vegna er þetta rekið af yndislegum sjálfboðaliðum og auðvitað með dyggum stuðningi frá Barnamenningarsjóði og Hafnarfjarðarbæ sem gera þetta mögulegt.'
Unnur segir hátíðina hafa vaxið gífurlega hratt en fyrsta árið hafi fimm þúsund manns sótt hátíðina og talan tvöfaldast í fyrra, þegar tíu þúsund búningaáhugamenn mættu í fjörðinn. Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.Gleymt lykilorð?Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu. Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.
(0)Comments