Nokkur þúsund mótmæla sigri AfD í Berlín

Nokkur þúsund mótmæla sigri AfD í Berlín
View on original source
Category: Politics
Share
Archive
Like
Nokkur þúsund mótmælendur söfnuðust saman við Brandenborgarhliðið í Berlín síðdegis í dag til að mótmæla sigri hægriflokksins AfD, eftir að flokkurinn vann sögulegan stórsigur í þing­kosn­ing­un­um í sam­bands­rík­inu Saxlandi-An­halt í gær. Lögreglan í Berlín áætlaði að um 5.000 hefðu verið viðstaddir mótmælin klukkan 17 í dag, klukkutíma eftir að þau hófust, en einn af skipuleggjendum mótmælanna sagði mannfjöldann nær 14.000. Fyrri mótmælaalda gegn AfD snemma árs 2025 dró að sér hundruð þúsunda mótmælenda víðs vegar um landið, þar á meðal gríðarlegan mannfjölda í þýsku höfuðborginni Berlín. Mun dræmari aðsóknin í kvöld er 'ekki merki um að fólk sé að rísa upp, tilbúið til aðgerða og meðvitað um að það sé þegar á elleftu stundu,' sagði mótmælandinn Marie-Therese Hattendorf við AFP. 'Ég sé að lýðræðið í landinu okkar er nú í alvarlegri hættu,' bætti hún við. Annar mótmælandi, sem gaf aðeins upp sitt fyrsta nafn, sagði að niðurstaðan hefði gert hana 'leiða'. Hún tók þátt í mótmælunum í kvöld með syni sínum og hundi og barðist fyrir 'opnu samfélagi þar sem allir finna sig velkomna og skilgreinda'.

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.