Við Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi á Suðurlandi eru nú á lokastigi framkvæmdir við byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar sem verður tekin í notkun í næsta mánuði.
Þetta er eitt stærsta hús sinnar gerðar sem reist hefur verið í dreifbýlinu, en hugsunin með þessu er að skapa aðstöðu sem nýtist íbúum til langrar framtíðar, segir Haraldur Þór Jónsson oddviti sveitarfélagsins.
Að grunnfleti er húsið rúmir 2.700 fermetrar og þar af er íþróttasalurinn 1.350 fermetrar. Samtals er húsið 3.618 fermetrar, þar af allstórt rými á efri hæð sem bíður ráðstöfunar. Einnig er verið að byggja tengibyggingu á milli íþróttahússins og skólabyggingarinnar, enda er í nýju íþróttamiðstöðinni stór matsalur og tilheyrandi stóreldhús.
'Fyrir inniíþróttir verður þetta stærsta íþróttahúsið á Suðurlandi og fyrir mannlífið hér í sveitinni verður þetta mikil lyftistöng. Innviðirnir hér hjá okkur í sveit eru orðnir býsna sterkir,' tiltekur oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps þar sem búa um 700 manns.
Samanlagður kostnaður við byggingu nýju íþróttamiðstöðvarinnar stendur nú í rúmum 1 milljarði kr. en mun væntanlega ná um 1,1 milljarði kr. þegar allt er saman lagt.
'Þetta er vel innan áætlana. Þegar framkvæmdir hófust gerði áætlunin ráð fyrir að kostnaðurinn yrði á verðlagi dagsins í dag tæpir 1,4 milljarðar kr. Hluti af framkvæmdunum verður fjármagnaður með lántöku, en eftir þessa miklu uppbyggingu er áætlað að skuldaviðmið sveitarfélagsins verði um 65-70%, sem má að hámarki vera 150%. Það er vel sloppið og sveitarfélagið stendur vel og er komið með fyrsta flokks íþróttaaðstöðu,' segir Haraldur. Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.Gleymt lykilorð?Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu. Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.
(0)Comments