Myndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans

Myndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
View on original source
Category: Blend
Share
Archive
Like
Hótel- og matvælaskólinn í Menntaskólanum í Kópavogi fagnaði 30 ára afmæli sínu með glæsilegri hátíð laugardaginn 5. september. Fjölbreytt dagskrá var í boði þar sem matur, keppnir og kynningar voru í aðalhlutverki. Meðal þess sem fór fram var matarmarkaður smáframleiðenda, fyrirtækjakynningar, gúrkuskurðarkeppni og undankeppni matreiðslukeppninnar Arctic Young Chef. Þá voru matarvagnar á staðnum, landslið kjötiðnaðarmanna starfrækti kjötbúð og boðið var upp á pop-up kleinuhringjabakarí. Gestir gátu einnig kynnt sér starfsemi skólans og fjölbreytt nám sem þar er í boði. Góð stemning ríkti í skólanum og settu gestir, nemendur, starfsfólk og fagfólk úr veitingageiranum skemmtilegan svip á afmælishátíðina. Meðfylgjandi myndir frá hátíðarhöldunum tók Rúnar Hreinsson. Myndir: Rúnar Hreinsson 2026Hótel og matvælaskólinnMyndasafn Auglýsingapláss

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.