Bandaríski leikarinn Ryan Reynolds verður fimmtugur þann 23. október næstkomandi en þrátt fyrir tímamótin hefur hann lítinn áhuga á að slá upp stórri afmælisveislu. Reynolds segist fá meira en nóg af athygli í sínu daglega lífi.
Leikarinn ræddi komandi stórafmæli sitt í samtali við People á frumsýningu nýjustu kvikmyndar sinnar, hasargamanmyndarinnar Mayday, í New York á dögunum.
'Mér líkar ekki sérstaklega við afmæli. Ég meina, þau eru allt í lagi,' sagði Reynolds. 'Ég kvarta ekki yfir því að eiga afmæli en ég er ekki þessi týpa sem segir, 'hey, höldum risastóra veislu fyrir mig.''
Hann sagðist raunar fá alveg næga athygli í starfi sínu.
'Ég er góður. Ég fæ næga athygli. Ég var rétt í þessu á rauða dreglinum. Þetta er meira en nóg.'
Eiginkona Reynolds, leikkonan Blake Lively, fagnaði 39 ára afmæli sínu 25. ágúst síðastliðinn. Reynolds birti þá á Instagram fallega kveðju til eiginkonu sinnar.
'Til hamingju með afmælið, besta manneskja sem ég þekki,' skrifaði hann meðal annars.
Það er nóg um að vera hjá hjónunum þegar kemur að afmælishöldum. Á aðeins 113 daga tímabili halda þau upp á afmæli beggja hjónanna og þriggja af fjórum börnum sínum. Þar að auki eiga þau brúðkaupsafmæli 9. september.
Elsta dóttir þeirra, James, verður 12 ára í desember, Inez verður tíu ára í september og Betty sjö ára í október. Yngsta barn þeirra, sonurinn Olin, verður fjögurra ára í febrúar.
'Í rauninni heldur þetta áfram alveg fram að fimmtugsafmælinu mínu. Það er eiginlega galið,' sagði hann. 'Ég eyði mestum hluta dagsins í að anda að mér helíum, blása upp blöðrur, tæma þær og blása svo upp fleiri blöðrur.'
(0)Comments