Borgin leggst ekki gegn útvíkkun vaxtarmarka

Borgin leggst ekki gegn útvíkkun vaxtarmarka
View on original source
Category: Politics
Share
Archive
Like
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að nýr meirihluti í Reykjavík muni ekki standa í vegi fyrir því að svonefnd vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins verði færð út. Hún segir málið í raun leyst af hálfu Reykjavíkur og að borgin muni ekki beita neitunarvaldi sínu gegn útvíkkun markanna. Þetta kemur fram í viðtali við Hildi í Spursmálum þar sem rætt er um stöðuna á byggingamarkaði og möguleika sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu til frekari uppbyggingar. Vaxtarmörkin hafa verið umdeild en þau afmarka það svæði þar sem gert er ráð fyrir þéttbýlisþróun á höfuðborgarsvæðinu. Nágrannasveitarfélög Reykjavíkur hafa meðal annars gagnrýnt að mörkin takmarki möguleika þeirra til að vaxa út á við. Í viðtalinu var Hildur spurð hvort hún væri reiðubúin að falla frá kröfu um að Reykjavík hefði neitunarvald þegar kæmi að breytingum á vaxtarmörkunum. 'Neitunarvaldið er lögbundið. Ég heyri það reyndar á ráðherra að nú er unnið að breytingum á löggjöfinni sem gerir að verkum að neitunarvaldið sé ekki í hendi eins sveitarfélags,' segir Hildur. Aðspurð hvort Reykjavík gæti einfaldlega lýst því yfir að borgin hygðist ekki beita slíku valdi svarar hún því játandi. 'Já, algjörlega. Og ég get alveg sagt þér það að við Sjálfstæðismenn í Reykjavík höfum alltaf talað fyrir því að útvíkka vaxtarmörkin og við höfum staðið með félögum okkar í nágrannasveitarfélögum sem hafa viljað til að mynda byggja á Gunnarshólma eða annars staðar.' Hildur segir því ljóst að slík uppbygging muni ekki stranda á nýjum meirihluta í Reykjavík. 'Það strandar ekki á okkur og það hefur einmitt líka verið hluti af okkar stefnu að færa þessi vaxtamörk út.' Hildur var að lokum spurð hvort skilja mætti orð hennar þannig að málið væri, hvað Reykjavík varðaði, leyst enda Sjálfstæðisflokkurinn í meirihlutasamstarfi með Viðreisn og Framsóknarflokki. Svaraði hún: 'Já, algjörlega.' Viðtalið við Hildi Björnsdóttur má nálgast í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.