Háskóli Íslands keypti áfengi af áfengisnetversluninni Santé að andvirði 925.300 kr. á árunum 2021 til 2025. Þetta kemur fram í svari Silju Báru Ómarsdóttur, rektors HÍ, við fyrirspurn mbl.is.
Rektor segir það vera afstöðu Háskóla Íslands að eiga ekki í viðskiptum við aðila þar sem lögmæti starfseminnar er óviss. Sú afstaða verði ítrekuð innan skólans.
Í öllum tilfellum sé um að ræða innkaup á vegum stofnana eða þjónustuverkefna hjá Háskóla Íslands að sögn rektors. Um sé að ræða verkefni sem fjármögnuð eru með sjálfsaflafé eða styrkjum en ekki beinni fjárveitingu úr ríkissjóði.
Eigendur Santé voru ákærðir í fyrra af ríkislögreglustjóra fyrir sölu áfengis. Kaupin fóru fram í gegnum franska félagið Santewines sem er eigandi Santé.
Háskólinn er sú ríkisstofnun sem hefur eytt mestu fé hjá birgjanum eða 925.300 kr. samkvæmt rektor. Fram kom í umfjöllun mbl.is fyrir helgi að íslenska ríkið hefði keypt birgðir af Santé fyrir alls 1,1 milljón króna. Viðskiptin áttu sér stað frá árinu 2025 til 2026.
Auk Háskóla Íslands verslaði Framkvæmdasýsla ríkisins áfengi fyrir talsvert lægri upphæð. Útgjöldin eru í opnum reikningum skráð sem starfsmannakostnaður upp á 86.760 krónur auk dráttarvaxta upp á 76.998 krónur. Reikningurinn lenti í vanskilum.
Listasafn Íslands verslaði fyrir 8.400 krónur hjá Santé en þar var um óáfenga drykki að ræða.
Eigendur Santé, þeir Arnar Sigurðsson og Elías Blöndal Guðjónsson, voru ákærðir af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu þann 19. júní síðastliðinn.
Þeim er gefið að sök að hafa selt eina rauðvínsflösku og tólf dósir af bjór í fyrra.
Verknaðurinn er talinn brjóta gegn einkaleyfi ríkisins á smásölu áfengis. Eigendurnir hafa neitað sök og sagst ætla að taka til varna.
(0)Comments