Ljómandi frísklega og fallegar með nýjan farða

Ljómandi frísklega og fallegar með nýjan farða
View on original source
Category: Entertainment
Share
Archive
Like
Allar helstu skvísur Íslands mættu á Barbara kaffibar í Hafnarfirði á dögunum til þess að prófa nýja Double Serum farðann frá Clarins. Vörmerkjastjóri Clarins, Marsibil Heimisdóttir, tók á móti gestum og förðunarfræðingurinn Nína Rún Gunnarsdóttir var á staðnum og sýndi hvernig best væri að nota farðann til þess að líta sem allra best út. Boðið var upp á alvöru kaffi en Barbara kaffibar er staðsett við Strandgötu í Hafnarfirði. Þórdís Björk Þorfinnsdóttir leikkona mætti í boðið en hún er nýbúin að eignast barn með kærasta sínum, Júlí Heiðari. Þar var líka Hafdís Sól Björnsdóttir vörumerkjastjóri og áhrifavaldur, Kristjana Steingrímsdóttir eða Jana eins og hún er kölluð heilsukokkur, Unnur Eggertsdóttir leikkona, Sigríður Margrét markaðsmanneskja og Magnea Björg Jónsdóttir markaðsmanneskja og áhrifavaldur. Sérfræðingar í förðunarheiminum segja að nýi Double Serum farðinn sé næsta kynslóð serumfarða sem veitir ljómandi satínáferð og fallega þekju. Eins og sjá má á ljósmyndum Rebekku Rutar var einstök stemning í Hafnarfirðinum þennan dag og allar ljómandi sætar og frísklegar.

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.