'Erfitt að draga hratt út ríkisútgjöldum'

'Erfitt að draga hratt út ríkisútgjöldum'
View on original source
Category: Politics
Share
Archive
Like
Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, segir að áætlanir í fjárlögum geri ráð fyrir niðurskurði samhliða gjaldskrár- og skattahækkunum. Hann segir eðli ríkisrekstrar með þeim hætti að erfitt geti verið að draga úr útgjöldum með skörpum hætti og að flestir vilji standa vörð um ákveðin grunnkerfi samfélagsins. 'Við gerum þetta [að ná hallalausum fjárlögum] með aðhaldi að tveimur þriðju hlutum en tekjuöflun að einum þriðja hluta. Þetta er málamiðlun og það er þannig að það er mjög erfitt að draga hratt úr ríkisútgjöldum. Ef við förum yfir söguna þá hefur fáum fjármálaráðherrum tekist það. Kannski helst í kjölfar hrunsins, annars er þróunin iðulega í hina áttina,' segir Daði Már á ríkisráðsfundi í dag. Hann segir að tekjuráðstafanir vegna gjaldskrár- og skattahækkana séu sambærilegar að umfangi við þær sem ráðist hefur verið í frá árinu 2022. 'Á hverju einasta ári ræðst ríkið í einhverjar tekjuráðstafanir. Þessar ráðstafanir eru af svipaðri stærðargráðu. Yfirleitt eru þetta í kringum 15–20 milljarðar á ári sem ríkið bætir við sig. Það er einfaldlega til þess að halda í horfinu. Umfangið sem hlutfall af vergri landsframleiðslu er ekki að vaxa.'

(0)Comments

 

A note on cookies

Newshunt uses essential cookies to keep you signed in and to remember your language and country, so the site works the way you expect. With your permission, we'd also like to use analytics cookies to understand how people use Newshunt and improve it over time.

Accepting only affects analytics. To learn more, view our Privacy Policy or Terms & Conditions.